AGM 2026
Niðurstöður aðalfundar Solid Clouds hf 2026
Aðalfundur Solid Clouds hf var haldinn fimmtudaginn 16. apríl 2026 kl. 16.00 í starfsstöð félagsins að Vegmúla 2, Reykjavík.
Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar. Í máli sínu vísaði hann til nýafstaðinnar fjármögnunar á árinu til að styðja við vöxt félagsins.
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu félagsins árið 2025. Ársreikningurinn var samþykktur.
Allir núverandi stjórnarmenn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn og voru þau sjálfkjörin:
- Andrea Olsen
- Bergþóra Halldórsdóttir
- Davíð Gunnarsson
- Eggert Árni Gíslason
- Skúli Skúlason
Þar sem einungis eitt framboð barst í varastjórn samþykkti fundurinn að fresta kjöri varamanna og fela stjórn félagsins að boða án ástæðulauss dráttar til nýs fundar í því skyni. Var bókað að fyrri varamenn, sem síðast voru löglega kjörnir og hvorki hafa látið af störfum né misst hæfi, teljist gegna áfram störfum þar til nýtt lögmætt kjör hefur farið fram. Varastjórn er því áfram um sinn skipuð eftirfarandi einstaklingum:
- Björn Ingi Pálsson
- Ólafur Andri Ragnarsson
- Ingólfur Vignir Ævarsson
Stjórnin hefur skipt með sér verkum. Eggert Árni Gíslason verður stjórnarformaður og Davíð Gunnarsson varaformaður.
Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna og varamanna var samþykkt. Einnig var samþykkt starfskjarastefna Solid Clouds hf óbreytt frá síðasta aðalfundi.
Hlynur Sigurðsson frá KPMG ehf., var aftur kjörinn endurskoðandi félagsins fyrir næsta rekstrarár.
Nánari upplýsingar:
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
Netfang: egillsig@solidclouds.com
Gögn tengd aðalfundi
Starfskjarastefna
Starfskjarastefna Solid Clouds hf.